2018 Desember
Kæri félagi í Geðhjálp!
Í tilefni jólanna bjóðum við þér og fjölskyldu þinni í árlegt opið hús Geðhjálpar í húsnæði samtakanna að Borgartúni 30 miðvikudaginn 19. desember milli kl. 13 og 16.
Boðið verður upp á drykki og veitingar í anda jólanna ásamt því að allir gestir fá lítinn jólapakka. Jólakvikmynd við allra hæfi verður sýnd kl. 13:00.
Geðhjálp hefur náð eftirtektarverðum árangri á árinu. Almannaheill, samtök þriðja geirans, veittu samtökunum viðurkenninguna Fyrirmynd 2018. ÖBÍ bætti um betur með Hvatningarverðlaunum til Bataskólans og tilnefningu Peysuverkefnis Útmeð‘a til sömu verðlauna.
Viðurkenningarnar fela í sér staðfestingu á því að að baráttan okkar í þágu fólks með geðrænan vanda skili árangri og hvatningu um að gera enn betur í framtíðinni.
Um hátíðarnar gefst tími til að hvílast, gleðjast og safna kröftum fyrir baráttuna framundan. Geðhjálp óskar þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og hlakkar til samfylgdarinnar á næsta ári.
Með bestu kveðju,
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri